Fjör...
Í fyrra dag
já í fyrra dag fór ég í heiðarrétt og hitti þar Döbbu og Arnhildi og Rúnu. ég og Rúna vorum svo saman alla réttina og svo stóð ég bara og svo kom kind á fullu spani og klessti á mig og ég skausta aftur fyrir mig og mamma rétt náði að grípa mig áður en ég datt á rassgatið. Svo seinna um daginn fórum við að kíkja á stóðið og ég var bara að knúsa Þýðu allan tímann. svo um kvöldið hringdi Rúna og mamma keirði mig þangað og ég og Rúna fórum að gefa hestunum salt og hoppuðum aðeins á bak Freyju án besli og allt en já svo kom Rúna með mér og mömmu upp í bústað og svo þegar við komum þangað var bústaðurinn fullur af gestum sem voru eiginlega allir syngjandi. svo fóru eginlega allir á ballið á klaustri nema mamma og einhverjir t.d. Siggi Fúsi og Ragnar og þeir voru einhvað að syngja með mer og Rúnu og svo fóru þeir líka á ballið og við Rúna fórum að sofa um svona 3 leitið.
![]()
Í gær
Í gær vaknaði ég um svona 11 og ég og Rúna fórum fram og fengum okkur morgun mat og fórum svo út á tranpolínið og vorum þar dáldið lengi en svo kom mamma hennar Rúnu að sækja hana og hún fór og svo eftir smá stund fórum við á Hörgsland til að hveðja og fróum svo bara í bæjinn. Þegar við komum í bæjinn fór ég í sturtu og fékk mér svo að borða og fór svo í tölvuna og horfði svo á sjónvarpið og svo tók svefninn við.
Í dag
Í dag vaknaði ég og fór í skólann og þar var alveg ágætt og svo kom leikfimi og þar þurftum við að taka próf í stóra hringnum og svo fórum við Gunný heim til mín og ég skilaði töskunni minni og náði í handboltadótið mitt og ég fór með Gunný til tannlæknis því hún þurfti að láta herða góminn en já svo fórum við heim til hennar og fengum okkur súkkulaðiköku og ætluðum að hjóla á æfingu en mamma hennar skutlaði okkur og svo á æfingu var eiginlega bara puð þarna en annars alveg gaman sko en svo kom mamma að sækja okkur og skutlaði okkur til gunnýjar og ég þurfti að hjóla heim. og svo núna er ég bara nýbúinn að borða og er núna bara inná msn, blogga og hlusta á mp3 spilarann minn. en já svo bara á eftir tekur svefninn við en ja hef ekkert meira að segja þannig bara bæbæ












